Rafræn vöktun
Í húsnæði Skólamatar fer fram rafræn vöktun með eftirlitsmyndavélum og aðgangsstýringarkerfi í öryggis- og eignavörsluskyni. Um er að ræða myndbandsupptökur án hljóðs.
Skólamatur er ábyrgðaraðili vöktunarinnar og tryggir öryggi persónuupplýsinga þeirra sem vöktun sæta. Skólamatur er annt um að allir sem sæti vöktun séu þess varir og því gerir Skólamatur grein fyrir vöktun með skýrum hætti.
Við vöktunina er sérstaklega hugað að því að gæta meðalhófs og að ganga ekki lengra en þörf krefur til að virða einkalífsrétt þeirra er vöktunin beinist að. Vöktunin fer eingöngu fram í skýrum, málefnalegum og lögmætum tilgangi.
Ákveðnir verkferlar gilda um skoðun myndefnis úr öryggismyndavélum og er slíkt einungis skoðað af þeim sem hafa til þess skýra heimild.
Umfang vöktunar
Myndavélar eru uppsettar utanhúss á húsnæði Skólamatar á Iðavöllum 1-3 og á almennum svæðum innanahúss þar sem vöktun er talin nauðsynleg. Staðsetningar eru auðkenndar með merkingum sem komið er fyrir á áberandi stað á hverju vöktunarsvæði. Leynilegar upptökur eru með öllu bannaðar.
Réttur þeirra sem vöktun sæta
Sá sem sætt hefur rafrænni vöktun á rétt á að skoða gögn sem til verða um viðkomandi við vöktunina. Skal heimila skoðun jafn fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku slíkrar beiðni. Þetta á því ekki við ef réttur þess sem sætt hefur vöktuninni til að fá að skoða gögnin þykir eiga að víkja að nokkru eða öllu fyrir hagsmunum annarra en hans eigin. Ef óljóst er hvort verða á við beiðni um skoðun eða hlustun er efni sent til lögreglu eða Persónuverndar til skoðunar.
Afhending persónuupplýsinga
Upplýsingar um afhendingu persónuupplýsinga sem verða við rafræna vöktun:
Varðveisla persónuupplýsinga sem verða til við rafræna vöktun
Upplýsingar sem verða til við rafræna vöktun verða varðveittar í 30 daga skv. 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun. Skólamatur eyðir upptökum að þeim tíma liðnum. Þetta á ekki við um upptökur sem hafa verið sendar lögreglu vegna slyss eða refsiverðra mála, upptökur vegna sönnunar krafna í dómsmálum eða annarra slíkra laganauðsynja eða að Persónuvernd heimili sérstaklega eða mæli fyrir um lengri varðveislutíma.
Andmæli við framkvæmd vöktunar
Komi fram athugasemdir eða andmæli við framkvæmd vöktunar og/eða ábendingar um að hún uppfylli ekki þær kröfur sem settar eru í reglum þessum eða lögum skal hafa samband við Skólamat með því að senda póst á netfangið skolamatur[hjá]skolamatur.is eða hringja í síma 420 2500.
Á vef persónuverndar má finna svör við algengum spurningum um öryggismyndavélar og reglur sem um þær gilda.
Lög og reglur
Reglur Skólamatar um öryggisvöktun byggja á: