Fimm á dag
Frá árinu 2006 hefur Skólamatur boðið upp á svo kallaðan “grænmetisbar” þar sem börnin geta nálgast ávexti, grænmeti sem og afurðir eins og baunir, túnfisk og pasta. Í heildina má segja að ánægja hafi ríkt um “barinn” og flest barnanna leita sér þar fanga. Samkvæmt framboðstölum Skólamatar neytti hver nemandi um 50 grömm af ávöxtum á dag á skólaárinu 2009 og um 15 grömm af grænmeti.
Nýlega birti Lýðheilsustöð “Fæðuframboð á Íslandi 2008”. Þar kom meðal annars fram að samdráttur hafi orðið á neyslu á ávöxtum og grænmeti á milli áranna 2007 og 2008. Þegar línuritið hér að neðan er skoðað má sjá að neysla ferskra ávaxta hefur aukist mjög mikið hér á landi frá árinu 1960 en þá nam neyslan um 20 kg per mann á ári samanborið við 60 kíló á árinu 2008 sem samsvarar því að á árinu 2008 hafi hver maður neytt um 165 grömm af ferskum ávöxtum að jafnaði á dag.
Samkvæmt rannsókn á 9-15 ára gömlum börnum sem framkvæmd var hér á landi á árunum 2003-2004 kom meðal annars fram að “9 ára börn borða að meðaltali 36 grömm á dag af grænmeti og 15 ára unglingar 45 grömm á dag. Þess má geta að meðalstór gulrót vegur um 60 grömm og meðalstór tómatur vegur um 80 grömm” (www.lydheilsustod.is) og samkvæmt sömu rannsókn var meðalneysla barna um það bil hálfur ávöxtur á dag eða 73 grömm.
“Lýðheilsustöð hvetur fólk til að borða fimm skammta eða 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og safa á dag fyrir fullorðna, þar af a.m.k. 200g af grænmeti og 200g af ávöxtum, auk kartaflna.” (www.lydheilsustod.is)
Það er því ljóst að ef miðað er við ábendingar Lýðheilsustöðvar mættu börnin okkar (sem og að sjálfsögðu einnig við sem tilheyrum þeim fullorðnu) auka neyslu á ávöxtum og grænmeti og við hjá Skólamat viljum í því sambandi hvetja þau börn sem hjá okkur eru í áskrift að leita reglubundið í “grænmetisbarinn” og velja sér ávexti og grænmeti við hæfi.
Ólafur Gunnar Sæmundsson, næringarfræðingur