
Í upphafi skólaárs vil ég nota tækifærið og bjóða nemendur og kennara velkomin til starfa.
Við hjá Matarlyst Atlanta viljum standa okkur vel í starfi og gera okkar besta til að sá matur sem boðið er upp á standist fyllilega þær kröfur sem gerðar eru til skólamatar.
Og eitt er víst að hvort heldur um sé að ræða starfsmenn Matarlystar, kennara eða foreldra skólabarna að þá er það vilji allra að boðið sé upp á hollan og góðan mat sem börnin gera góð skil.
Við gerum okkur fulla grein fyrir því að alltaf má betur gera og því eru allar ábendingar vel þegnar. Undirritaður hvetur alla sem hafa spurningar varðandi skólamatinn að senda sér línu og er því lofað að öllum spurningum verði svarað.
Með kveðju, Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur
oli@hreyfing.is